Glodurauga og fjallafegurd
Blogginu hefur borist kvortun, kvartad var yfir leti minni vid ad blogga. Já, ég veit alveg upp á mig sokina!!
Thegar madur ferdast enn tha stundum thyrmir yfir mann einhvern vegin. Thad kom fyrir mig um daginn og eg var naestum buin ad kaupa flugmida heim. En svo lagadast allt saman aftur.
Addragandinn var ad ég lenti í vandraedum. Var á strondinni í thorpi sem heitir Bahía de caraques og akvad ad gamni mínu ad fá mér rómantískan gongutúr á strondinn…klukkan 10 ad morgni. Thad endadi med thí ad 2 c.a.15 ára piltar ákvadu ad ég vaeri vaenlegt fórnarlamb fyrir rán. Thad var rangt hjá theim, en ég endadi samt med kúlur á hausnum, blódnasir og glódurauga. En their stálu engu af mér, og ég er nokkud viss um ad their reyna ekki raena neinn í brád. Ég gerdi allt sem á ekki ad gera, bardist til baka, en í thetta skipti gekk thad upp. Naest held ég ad ég rétti bara toskuna til theirra.
Eftir thetta var ég svoldid lítil í mér, flutti mig yfir í naesta strandbae og sleikti sárin. Núna er lidin vika, glóduraugad ad minka og hjartad ad staekka aftur. Thad borgar sig ekki ad breytast hraedslupúka, thá verd ég orugglega raend aftur.
Núna er ég komin aftur upp í fjollinn, í gamgla heimaborg Stefáns Boga ef mér skjátlast ekki. Thad tók ekki nema 8 tíma ad komast hingad rúma….thannig ad ég er svoldid threytt í rassinum. Og já thetta var hint um ad ég nenni ekki ad sitja kjurr lengur. Ég aftur á móti lofa ad standa mig betur í blogginu….
-
dorie-kelley reblogged this from skotta
-
skotta posted this