Skotta

Thoughts, likes and stuff

Colca Canyontra

“Og hvad gerdir thú í vikunni?”, myndi kannski einhver spyrja mig svona ef einhver hér taladi Íslensku. Og thá gaeti ég aldrei thessu vant svarad a mjog svo kúl hátt. t.d. “Ég fór í 3 daga gongutúr um dýpsta gljúfur veraldar”, eda thad sem sannara er “ég rétt svo streid upp úr dýpsta gljúfri veraldar”.

Colca Canyon er í sudurhluta Peru, ekki svo langt frá Arequipa (thar sem eg er núna) og er hluti af Andesfjollunum. Landslagid hér minnir mikid a landslagid í teiknimyndunum um týndu borgirnar (svona ef einhver man eftir theim). Thad er hreinlega stórkostlegt landslagid. Gangan leidir mann í gegnum lítil thorp sem sum hver hafa ekki rafmagn. Yfir brýr sem dúa thegar madur gengur yfir thaer. Brekkur og haedir sem virdast stundum vera endalausar. Thad er t.d. meira ad segja thad ad ganga í rúma 3 tíma BARA nidur í móti. OG ganga í um 4 tíma bara upp í móti. Uppí móti kaflinn var mér mjog erfidur, haekkun um c.a. 1200 m, um 27 stiga hiti, hnéd á mér í miklum mótmaelum og ég í litlu formi. En upp komst ég og ég sver ad ég átti nánast Rocky stund (Standa efst í troppunum, halda hondunum upp í loft og oskra YEAH!), en ég kann mig smá. Thannig ad ég helt bara áfram ad ganga.

Vid vorum svo heppin ad thessi fallegi hundur ákvad ad aettleida okkur og elti okkur allan tímann sem vid vorum í gljúfrinu. Fannst hann adeins minna fallegur thegar ég fann hann sofandi á rúminu mínu fyrsta kvoldid í gljúfrinu. Komst samt ad thví ad hann er ágaetis távermir. Skemmtilega er ad fullt af fólki sem vid hittum thekkir hundinn og sagdi okkur ad thetta gerir hann reglulega. Thegar honum leidist thá bara skreppur hann í gongutúr med heimsku gringóunum sem eru ad thrama tharna um. En fallegur er hann!! og gódur félagsskapur. Nema thegar hann reyndi ad veida haenurnar og gamla konan sem átti haenurnar skammadist í okkur á Chechua.

Gljúfrid sem er yfir 4000m djúpt er audvitad thekkt fyrir ad vera dýpsta gljúfrid, thad er thekkt fyrir nátturufegurd og svo líka, ad ollu odru ólostudu, thekkt fyrir hvad thad er mikid af Kondórum. Thar sem ég er ekki lengur med almennilega myndavél, thá á ég engar fínar myndir. En ad sjá thessar skepnur med vaenghaf um 3 metra svífa fyrir ofan mann, nedan mann og einu sinni var einn sem sveif um 10 metra frá mér í somu haed. Thad var eins og kallast a godri íslensku “Vá móment”. Myndavélin var bara en í vasanum.

Vid vorum med mjog svo fjolthjodlegan hop. Thetta er reyndar hopur sem er allur ad ferdast sem einstaklingar en sídan erum vid búin ad vera meira og minna saman sídustu 3 vikur. Í hópnum eru nordmenn, ástrali, bandaríkjamadur, breti, perúbúi og ég. Trúid mér vid vekjum mikla athygli thegar fólk spyr hvadan vid séum. Á myndinni efst má sjá Bretan, nordmennina og íslendinginn.